Það er búið að vera ansi mikið um að vera alla helgina á mínum bæ.
Á föstudagin var skeiðveisla og unghrossakeppni uppí Hvammi og
tókst það bara ansi vel enda alveg frábært fólk í þessari
mótanefnd...he he

Ég keppti á henni Reisingu í unghrossakeppninni
og gekk það bara alveg ágætlega.
Á laugardaginn var svo gæðingamót og úrtaka fyrir Landsmót sem
byrjaði klukkan níu og var búið klukkan níu um kveldið.....svaka
stuð

Ég keppti á Gátu í B.flokki II og okkur hefur bara
aldrei gengið eins vel á vellinum og nú og fengum 8.25 eftir
forkeppnina og vorum í öðru sæti og fengum svo 8.27 í úrslitum og
héldum öðru sætinu

Takk Fanney og Logi fyrir
hjálpina

Mamma lánaði Funa í barnaflokkinn og hún Rakel keppti á honum
og gekk henni rosa vel og lennti í 3 sæti
Svo óska ég öllum til hamingju sem komust inn á Landsmót, þetta
verður sko glæstur hópur sem fer fyrir ÞYT
Systkyni mömmu komu frá svíþjóð á laugardaginn og gistu hjá
okkur eina nótt. Hún á s.s. 3 systur og 2 bræður annar býr reyndar
á selfossi en hinn býr í Hollandi.
Rosalega skrýtin tilfinning að hitta skyldmenni sín í fyrsta
skipti þegar maður er að verða 22 ára gömul

en nú er bara að
halda sambandi við alla og gera sér ferð einhverntíman út til
þeirra og hitta þeirra fjölskyldur.
Ég neita nú ekki fyrir það að ég var orðin ansi þreytt á
laugardagskvöldið og eiginlega ennþá á sunnudaginn eftir þetta allt
saman enda meira en að segja það að vera í þessari mótanefnd og
vera að keppa og alles
Jæja kveð að sinni og minni á að Landsmót er á næsta
leyti...jibbbbíííí